Og svo kom stríð og svo kom her. Og svo kom friður og enn meiri her. -Megas

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Vibbalegur Viðar

Á mínum hefðbundna bloggrúnti rak ég augun í umræðu um dreng einn, Viðar Guðjohnsen. Það hafði farið fram hjá mér, eins og mörgum öðrum, að hann segist aðhyllast “hófsama aðskilnaðarstefnu” á heimasíðu sinni. Formaður ungra Frjálslyndra segist vera:

Frjálslyndur þjóðarsinni sem aðhyllist hertari innflytjendalöggjöf og hófsama aðskilnaðarstefnu.


Nú tel ég víst að téður Viðar sé hvorki tornæmur né treggáfaður þó hann sé augljóslega fábjáni. Það hræðir mig.

Þroskaheftu fáráðlingarnir sem ætluðu að bjóða fram til Alþingis undir merkjum Íslenskra þjóðernissinna hræða mig ekki, enda hafa þeir ekki nægilega greind til þess að teljast hættulegir. Sama má segja um krakkana á Suðurnesjum í Íslandi fyrir Íslendinga.

Ég get vel skilið forsendur rasisma sem verður til í ákveðnu umhverfi. T.d. vegna félagslegrar einangrunar ákveðinna samfélagshópa eða þar sem að mikil fátækt ríkir og atvinnuleysi er viðvarandi. En hvað knýr Viðar áfram í hans viðbjóðslegu herferð?

Þegar menn eins og Viðar, sem eru ekki greindarskertir og titla sig sem aðskilnaðar- og þjóðarsinna, setur að mér hroll.

Hvað á maðurinn við með “hófsamri aðskilnaðarstefnu” og hvað er það að vera “þjóðarsinni”? Geturðu svarað því Viðar?

Hvað í andskotanum er “hófsöm aðskilnaðarstefna”? Hvað er þá öfgafull aðskilnaðarstefna?

Reynsla mín er sú að menn sem titla sig “hófsama” eru yfirleitt öfgafullir.

###

Svo leikur mér forvitni á að vita hvernig Viðar ætlar að haga “þjóðarfræðslunni” fyrir nýbúa. Ég legg til að Viðar haldi opinn fyrirlestur í Háskólabíói, ætlaðan fólki frá Austur-Evrópu. Þar getur hann uppfrætt fólkið um fornkappana okkar í Íslendingasögunum; um hetjudáðir þeirra og drengskap.

Ætli hann sleppi kaflanum þar sem þeir lögðust í víking í austurveg inn með Eystrasalti og brenndu bæi, rændu og rupluðu og hópnauðguðu konum á afar kerfisbundinn og skipulagðan hátt?

Nauðganir og ofbeldisverk eru nefninlega ekki uppfinning Letta og Pólverja eins og sumir vilja halda.

3 Comments:

  • "Nauðganir og ofbeldisverk eru nefninlega ekki uppfinning Letta og Pólverja eins og sumir vilja halda."
    Það er ein með mér í bekk og það skal taka það strax fram að pabbi hennar er lögreglumaður. Hún heldur því fram að það séu svo margir Pólverjar á Íslandi að nauðga hverri stelpunni á fætur annarri og að þeir séu gjörsamlega stjórnlausir. Hún segist einnig vita þetta betur en við hin vegna þess að pabbi hennar er lögreglumaður. Ég mæli með því að fólk eins og hún fari á http://mbl.is og fletti upp í leit (munið að haka við 'Fréttir mbl.is') og skrifið "Pólverjar löghlýðnustu menn á Íslandi" og lesið greinina þar.
    Takk fyrir mig. Kv. Tinna

    By Blogger Tinna, at 2:15 e.h.  

  • Takk fyrir þessa ábendingu!

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:38 e.h.  

  • Ég vill hófsamann aðskilnað við Evrópusambandið.

    Mér var bent á að fólk gæti misskilið þetta því tók ég það út af vefsíðunni minni.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


 

Powered by Blogger