Og svo kom stríð og svo kom her. Og svo kom friður og enn meiri her. -Megas

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Hvílík ritsnilld!

gella

lítiði bara til danmerkur. þegar danir áttuðu sig allt í einu.. voru komnir of margir útlendingar inn í landi og þá var það of seint. og núne geta þeir ekker gert í því. og 90% af nauðgunum, eru framdar af útlendingum! þetta er fáránlegt sko! mér finnst þetta vera mun alvarlegra en fólk er að halda... :/


Þetta komment er að finna á enn einum rasistavefnum; http://edalkvendi.bloggar.is/blogg/272754/

Þessi staðhæfing finnst mér jafn líkleg og að sæti gjaldkerinn sem afgreiddi þig í bankanum á útborgunardegi í hádeginu, sem var í þokkabót föstudagur, myndi eftir þér um kvöldið sama dag þegar þú hittir hana á troðnum skemmtistað þegar hún var búin með kippu af Smirnoff Ice. Semsagt útilokað.

En ég býst nú fastlega við því að þessi "gella" sem skrifar kommentið sé háskólamenntaður fræðimaður sem getur lagt faglegt mat á þessar tölur sem hún vísar í. Stíllinn í kommentinu ber alla vega vott um áralanga akademíska reynslu.

Ef ég mætti ráða myndi ég fleygja þessari "gellu" öfugri til Svalbarða þar sem hún getur dúsað með norskum veðurfræðingum. Þeir eru allavega ekki óarískir Austur-Evrópumenn.

p.s.

Hitti rónann í morgun og við áttum stutt en áhugavert spjall. Ég birti það síðar þegar ég er búinn að hreinrita það. Í þetta sinn gaf ég honum bara fyrir blandi.

3 Comments:

  • vá. ég vildi óska þess að þessi stelpa væri besta vinkona mín. við eigum svo margt sameiginlegt.

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:48 f.h.  

  • Nú hefurðu tækifæri til þess, hún er á mæspeis: http://www.myspace.com/telma_b (*æl*)

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:28 e.h.  

  • ég er sammála ólinn...þið stelpur eigið að fara i bæinn með litin hnif sem þið getið verið með á ykkur eg veit að þetta hljomar soldið sick en eg skal lofa ykkur þvi þið fáið ekki fangelsis dom ef þið styngið mann i náran eða það svæði ef það sé verið að reyna að nauðga ykkur...þið fáið skilorðs bundin dóm ef þið hafið aldrei komið við sögu ofbeldis.vinur minn stakk strak 4 sinnum fullur honum var ógnað af enhverju krökkum en svo er hann nu soldið ruglaður þegar hann drekkur

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:48 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home


 

Powered by Blogger